Bangkok

Nudd, nudd og nudd! Okkur líst vel á Bangkok en hér er hiti, sviti og bleyta. Í morgun var eins og hellt væri úr fötu þegar við skriðum á lappir. Við stelpurnar byrjuðum á því að fara saman í nudd og lágum fimm saman á flatsæng í sama herbergi. Tónlistin sem spiluð var  meðan á nuddinu stóð  (á panflautu og skemmtara ) var m.a. hinn klassíski smellur lagið um Ninu og Geira (en sú tilviljun!) Við nutum okkar eigi að síður vel. Eftirmiðdeginum var eitt á stórum markaði þar sem við hittum fleiri úr hópnum. Í leigubílnum á leið okkar þangað létum við að sjálfsögðu plata okkur  og borguðum fjórfalt gjald miðað við strákana. Markaðskaupin gengu vel, fyrir utan smá uppistand þar sem töskusali ætlaði að ræna Ninu um heila 100 batta. Jónina Jóns lætur ekki plata sig á götumarkaði og varð alveg æf og stóð vinkonan hún Auðný að sjálfsögðu sem klettur við hlið hennar og hótaði manninum að fara fjandans til .... You will go to hell.. down under. Nina var orðin svo brjáluð að fá ekki peninginn til baka að hún sagði ...I might have to kill you... karlinn lét hana að lokum fá peninginn til baka þar sem við hótuðum að kalla á lögregluna. Gaman að segja frá því að 100 battar eru heilar 300 krónur. En þetta var spurning um réttlætiskennd!Við hittumst svo öll í kvöld og borðuðum frábæran mat á þessu flotta hóteli sem við erum á. Mikil plön eru fyrir morgundaginn og sjáum við til hvað rætist úr þeim. knús til ykkar allra P.S. Stelpur, þið sem hafið verið í heimsreisu með Bassa, róið ykkur í rólunni. Hann er í góðum höndum. VIÐ EIGUM HANN NÚNA. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bassi minn ekki láta þessar stúlkur plata þig!! Þær þykjast bara vera góðar en er svo bara vondar!!! Sjáðu bara hvernig þær fóru með þennan aumingja manni þarna á markaðnum í Bankonk!! Öss öss öss ekki gott! En það er nú samt gott hjá þér að leyfa þeim að halda að þær eigi þig núna en við í MAS vitum að þú kemur aftur til okkar þegar heim er komið ;) Knús til þín og reyndar allra hinna líka!

Gurrý (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 23:22

2 identicon

Já, svei mér þá Er hún Nína mín farin að rífast yfir smápening. hmmhmm Þetta er greinilega ný hlið á minni. Knús alle sammen, Brynja

Brynja Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 23:28

3 identicon

Það er sem ég segi............., "everybody loves Bassi"

Gerum hann að seðlabankastjóra.....................!!

Bassi minn!  Eru stelpurnar ekki góðar við þig...?

Have fun áfram elsku áhöfn og gangi ykkur súper vel!!

Berglind btr...

Berglind Þráins btr (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 10:58

4 identicon

Hæ öll.  Hvað er málið með þennan Bassa....????  Hver er þetta eiginlega???  Ég er alveg ómöguleg að hafa ekki hitt hann.  Verð bara að bjóða mig fram í heimsferð næst þegar hann fer ;)

Bestu kveðjur, Habbý

Hrafnhildur Kjartans (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 11:14

5 identicon

gó Nína ... töff ;-)       þessi gæji veður bara að mæta á næstu jólabollu og kynna sig fyrir Habbý og okkur hinum !!!  kveðja og gangi ykkur vel  GuS

Guðfinna (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Crew 1440

Höfundur

Crew 1440
Crew 1440
Áhöfn ICE 1440
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • DSC08758
  • DSC08750
  • DSC08737
  • DSC08727
  • DSC08715

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband