7.10.2008 | 23:53
2 dagar til stefnu...
Ferðalag áhafnar ICE 1440 hefst eftir 2 daga, nánar tiltekið 10. október kl 06:00. Upphafspunktur er Los Angeles, USA.
Hópurinn er orðinn verulega spenntur og upphitun var tekin í kvöld í Lækjasmáranum hjá aðstoðarflugmanninum. Þar átum við á okkur gat, þurfum nefnilega að safna forða sökum óhagstæðs gengis... þetta verður "McDonalds around the world".
Á morgunn verða allir að sinna mikilvægum verkefnum.... flugstjórarnir fara yfir fyrsta flugplanið, cabin crew ætlar til KEF að skoða TF-FIS, flugvirkinn leggur loka blessun á vélina, kokkarnir fara í startholurnar með glæsiveitingar og kóarinn..... já hún ætlar í klippingu :-)))
Við hlökkum til að leyfa ykkur öllum að fylgjast með þessu ævintýri.
Góðar stundir,
Baldvin, Orri, Raggý, Hrafnhildur, Axel, Kolla, Nína, Auðný, Berglind, Júlíus, Bassi og Jónas.
Um bloggið
Crew 1440
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og ég hlakka mikið til að fylgjast með ykkur :)
Kv
Hulda, dóttir Hrafnhildar
Hulda Proppé, 8.10.2008 kl. 08:09
Góða ferð og góða skemmtun!!
Þetta er frábært tækifæri sem þið eigið eftir að muna leeeeeenngi
Kári Kára (KKA Heimsferð nóvember 2007)
Kári Kárason, 8.10.2008 kl. 10:47
Góða ferð og góða skemmtun, segi eins og fleiri muna bara að sofa þegar þið komið heim.
kv
amý
amý19 (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 20:10
Góða ferð öll sömul og have fuuuuunnnnnn!!!!!!!!
Sé alveg að þetta verður bara skemmtilegt með ykkur öll þarna....segi bara "Já SÆLLLL."
Guð verið með ykkur.
Iris.
Iris Eiríksd. (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 23:32
Raggý, þú ert nátturulega snillingur að vera byrjuð að blogga áður en ferð hefst. Já þetta verður einhver snilld hjá okkur þar sem er ekki einu sinni hægt að fá dollara til að taka með sér úr landi. þar fór demantshringurinn sem ég ætlaði að kaupa í Dubai. En við höfum alltaf hvert annað... og það er allt sem máli skiptir þó við getum ekki keypt okkur að borða. Ég verð bara hoj og slank þegar ég kem til baka :-)
Nina
Nina (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 11:43
jisús hvað ég öfunda ykkur!!!! og mikið verður gaman að fá að fylgjast með....treysti á frænkubeibíið mitt að keep us posted!!!!
góða ferð elskurnar allar
bóel
bóel (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 12:26
Takk kærlega fyrir kveðjurnar... og don't worry frænka Bóbó... ég verð dugleg að skrifa... og Kolla líka.
Bestu kveðjur,
Raggý
Raggý (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 21:14
Flotta áhöfn :)
Vá, þetta verður skemmtilegt :) Njótið hverrar mínútu því þetta er dýrmæt lífsreynsla í reynslubankann og
verið góð við hvort annað, það gefur okkur svo mikið í svona ferð :)
Bestu kveðjur, Kiddi Möller (KEM) Heimsferð okt. 2006
Kiddi Möller (KEM) (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 00:15
Jú góðan daginn!
Ég sé strax að þetta verður erfitt og átakanlegt há ykkur, ekkert um hlátur eða grín! Einhver sagði að þið gætuð sofið þegar þið kæmuð heim og að sama skapi getið þið hlegið þegar þið komið heim!!!
Alveg róleg þetta er ekki öfundin að tala!!!
Góða ferð öll sömul.
Bestu kveðjur,
Sigrún sem ALDREI hefur farið í heimsferð en átti heima í Lagos!! ( og Vestmannaeyjum)
Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 11:07
Hæ, fólk. Góða ferð og skemmtun. Njótið tímans í botn, þetta líður allt of hratt og muna bara sofa seinna. kossar og knús til ykkar allra Sigga Toll
Sigga Toll (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 11:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.